Færsluflokkur: Bloggar
14.6.2016 | 23:09
Bölvaður hrokagikkur
Ég hef aldrei verið hrifinn af þessum Ronaldo síðan hann spilaði gegn Íslandi á Laugardalsvelli hérna um árið. Ég horfði upp á hann gera lítið úr íslenskum áhangendum sínum í gegnum glerið á rútu sem beið leikmanna Portúgals eftir leikinn með alls kyns neikvæðum líkamstilburðum. Og nú vogar hann sér að tala niður til íslenskra landsliðsmanna sem pökkuðu honum inn í leiknum. Allur hans auður dugði ekki til á móti íslensku leikmönnunum sem spiluðu með hjartanu og fyrir íslenskt stolt og fyrir íslenska þjóð. En það skilur ekki maður eins og Ronaldo því hann spilar bara fyrir peninga. Svona hroki á eftir að hitta hann illilega fyrir þó síðar verði. Til hamingju strákar! Þið eruð stórkostlegir! Áfram Ísland!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sigurður H Ingimarsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar